Foreldafélagið samþykkir að skrifa undir bréf Birgittu
Gerður tjáir okkur að hætt hafi verið við sameiningartillögur Grænuborgar og Lindarborgar. Þess í stað liggur fyrir að Lindarborg, Njálsborg og Barónsborg sameinist í einn leikskóla.
Slysavarnarnámskeið- fáir hafa skráð sig. Þarf að ýta á foreldra og kanna áhuga. Ef lítill áhugi er fyrir hendi þá er spurning hvort því verði aflýst og annað fundið í staðinn. T.d nuddnámskeið
Bernd brúðuleikhúsmaður kemur með sýningu í leikskólann 24.mars. Hann kemur í boði barnavinafélagsins Sumargjöf.
Til eru peningar sem ættu að fara í leiksýningu en það er spurning hvort þeir peningar verði ekki notaðir í sumar þegar Grænaborg verðu 80 ára. Halda veglega veislu, gefa leikskólanum gjöf o.s.frv.
Starfsdagur 6.apríl eftir hádegi.
PÁSKAR.
Nýjung-páskaleikur í vikunni fyrir páska. Foreldrafélagið gefur frauðegg til að skreyta og mála, börnin fela eggin í garðinum og foreldrar leita þeirra. Skemmtilegur leikur fyrir alla, foreldrar koma með eitthvað smáræði með kaffinu. besti hugsanlegi dagur þriðjudagur 19.april kl 16-17.
Öskudagur
Að vísu nýliðinn en fram komu hugmyndir að reyna að halda í öskupokahefðina. Á næsta ári væri gaman að leyfa þeim að gera eins og 1-3 öskupoka hver, skrifa falleg skilaboð og setja í hann. Þetta geta þau svo tekið með sér heim og gefið.
Kær kveðja, Ilmur