Í leikskólanum eru fjórar deildir:
Dropadeild fyrir yngstu börnin, tveggja og þriggja ára
Mánadeild fyrir tveggja og þriggja ára börn
Stjörnudeild fyrir þriggja og fjögurra ára börn
Sólskinsdeild fyrir fjögurra og fimm ára börn
Önnur svæði leikskólans eru:
Salur sem hver deild hefur afnot af einn dag í viku. Þangað fara börnin í skipulagðar hreyfistundir og í frjálsan leik. Þegar talað er um skipulagðar hreyfistundir er átt við markvissa hreyfiþjálfun, gróf og fínhreyfingar, ýmist í gegnum þrautabrautir eða hópleiki.
Tónlistarherbergi þangað fara börnin 1x í viku
Listasmiðja sem öll börn fara í einu sinni í viku.
Útileiksvæði Þangað fara börnin með sínum hópi einu sinni á dag yfir vetrartímann og á sumrin fer starf leikskólans að miklu leyti fram utanhúss.